Ástæður og áhrif verkfalls flugvirkja
Ótímabundið verkfall flugvirkja hefst að óbreyttu aðfaranótt miðvikudags. Fundur í deilunni fyrir helgi reyndist árangurslaus og ekki hefur verið boðað til nýs fundar. Rætt er um stöðu…
Sagnfræðingurinn Arnþór Gunnarsson hefur skrifað bók um hringveginn um Ísland. Þar fjallar hann fjallar um það hvaða áhrif opnun hringvegar um Ísland hafði fyrir landann.
Hringvegurinn varð til sem heild árið 1974 þegar þjóðvegur landsins var tengdur í hring með opnun brúar yfir Skeiðará á Suðurlandi.
Bókin er gefin út í nýrri seríu frá Sögufélaginu þar sem fjallað er um söguleg mál í stuttum, aðgengilegum ritum. Þessi bók Arnþórs er tæplega 100 síður.
Hvaða máli skipti opnun hringvegarins og hversu algengt er það í heiminum að fólk keyri hringinn í öðrum löndum?
Umsjón: Ingi Freyr Vilhjálmsson

Daglegur þáttur um stór og lítil fréttamál í umsjón Inga Freys Vilhjámssonar og Ingvars Þórs Björnssonar.