Sjávarútvegsverkefni Aurora-velgjörðarsjóðs í Sierra Leone í Afríku strandaði á spillingu segir framkvæmdastjóri sjóðsins.
Ráða- og áhrifamenn í landinu vildu fá greitt undir borðið svo verkefni sjóðsins gætu orðið að veruleika.
Framkvæmdastjórinn segir að Aurora hafi ekki viljað taka þátt í spillingunni í landinu.
Rætt er við Regínu Bjarnadóttur, framkvæmdastjóra Aurora.
Umsjón: Ingi Freyr Vilhjálmsson
Daglegur fréttaskýringaþáttur þar sem stór og lítil fréttamál eru matreidd á einfaldan hátt.