Ástæður og áhrif verkfalls flugvirkja
Ótímabundið verkfall flugvirkja hefst að óbreyttu aðfaranótt miðvikudags. Fundur í deilunni fyrir helgi reyndist árangurslaus og ekki hefur verið boðað til nýs fundar. Rætt er um stöðu…
Grindvíkingar lýsa því margir að dagar þeirra líði að mestu í bíl um þessar mundir. Hjá stórum fjölskyldum er skutlið milli vinnu, skóla, frístunda og gististaða orðið ansi tímafrekt. Í þessum þætti fer Þóra Tómasdóttir á rúntinn með Rannveigu Jónínu Guðmundsdóttur sem þekkir þetta af eigin raun. Hún lýsir lífinu á hrakhólum, langþreytu og öryggisleysi eftir náttúruhamfarir undanfarinna vikna.

Daglegur þáttur um stór og lítil fréttamál í umsjón Inga Freys Vilhjámssonar og Ingvars Þórs Björnssonar.