Atvinnumennska í fótbolta, kröfur og einmannaleiki
Í þessum þætti er rætt um áskoranir sem fylgja því að lifa drauminn og gerast atvinnumanneskja í vinsælustu íþrótt í heimi. Þóra Tómasdóttir ræðir við
Magnús Agnar Magnússon, umboðsmann nokkurra fremstu knattspyrnumanna þjóðarinnar, og Gunnar Birgisson íþróttafréttamann á Rúv. Rætt er um kröfur til atvinnumanna, sameiginlega eiginleika þeirra allra bestu og einmannaleikann sem stundum fylgir velgengni í fótbolta.
Frumflutt
7. feb. 2024
Aðgengilegt til
Rennur ekki út
Þetta helst
Daglegur fréttaskýringaþáttur þar sem stór og lítil fréttamál eru matreidd á einfaldan hátt.