Wolt-væðingin á Íslandi
Sendlar sem keyra út matarsendingar fyrir Wolt hafa í einhverjum tilfellum fengið greitt fyrir vinnu sína í gegnum einkahlutafélög. Maðurinn sem átti einkahlutafélagið sem gögnin…
Skotvopnalöggjöf og eldheitar umræður og deilur um skotvopnaeign í Bandaríkjunum eru á dagskrá í dag. Hart hefur verið tekist á um málið í áraraðir. Löggjöfin er æði frjálslynd í samanburði við önnur ríki heims og rétturinn til að eiga og bera vopn er verndaður í annarri grein stjórnarskrárinnar, þótt einnig sé deilt um það. Von margra, sér í lagi Demókrata, er sú að árásirnar verði loks til þess að gripið verði til aðgerða; löggjöfinni breytt og hún bætt. Þátturinn var fyrst á dagskrá 7. júní 2022.

Daglegur þáttur um stór og lítil fréttamál í umsjón Inga Freys Vilhjámssonar og Ingvars Þórs Björnssonar.