Ástæður og áhrif verkfalls flugvirkja
Ótímabundið verkfall flugvirkja hefst að óbreyttu aðfaranótt miðvikudags. Fundur í deilunni fyrir helgi reyndist árangurslaus og ekki hefur verið boðað til nýs fundar. Rætt er um stöðu…
Ráðgátan um uppstoppaða pólska villisvínið Villa vakti athygli þegar Þetta helst fjallaði um hana í síðasta mánuði. Danskur TikTok-áhrifavaldur tók málið meðal annars upp þar í landi.
Málið fjallar um það að uppstoppuðu pólsku villisvíni á stærð við manneskju var stolið úr bílskúr á heimili fjölskyldu í Hafnarfirði árið 1996. Árið 2015 var villisvíninu skilað til fjöslkyldunnar.
Í þessum þætti af Þetta helst er fjallað um ferðalag villisvínsins á þessum árum og sagt frá því hvar það var og hver skilaði því. Rætt er við Hafnfirðinginn Jón Össur Hansen.
Umsjón: Ingi Freyr Vilhjálmsson

Daglegur þáttur um stór og lítil fréttamál í umsjón Inga Freys Vilhjámssonar og Ingvars Þórs Björnssonar.