Við heyrum af aðferðum sem hafa raunverulega skilað árangri í kosningum. Leiðum til að fiska atkvæði fólks og ná kjöri þó ekki sé úr miklu fjármagni að moða.
Tryggvi Freyr Elínarson segir frá tæknilegum brögðum sem skiluðu Miðflokknum glæstri niðurstöðu í alþingiskosningum 2017. Einar Karl Haraldsson segir frá gagnreyndum aðferðum í kosningaastarfi og því sem átti þátt í sigri Ólafs Ragnars Grímssonar þegar hann fyrst var kjörinn forseti Íslands árið 1996.
Frumflutt
26. mars 2024
Aðgengilegt til
Rennur ekki út
Þetta helst
Daglegur fréttaskýringaþáttur þar sem stór og lítil fréttamál eru matreidd á einfaldan hátt.