Fjórir létust, þar af tvö börn, þegar skólarúta varð fyrir lest í Belgíu í morgun. Rútan keyrði út á lestarsporið framhjá öryggisslá.
Umræðu um fyrirhugaða þjóðaratkvæðagreiðslu um að hefja á ný viðræður við Evrópusambandið lýkur að óbreyttu á Alþingi í dag. Stefnt er á atkvæðagreiðslu á morgun.
Sjálfstæðisflokkurinn í Hafnarfirði, Samfylking og Viðreisn kynna meirihlutasáttmála sinn þar í dag. Á meðan fréttist lítið af meirihlutaviðræðum í Reykjavík.
Boranir Veitna hefjast á ný í Skammadal í Mosfellssveit í dag. Gripið var til ráðstafana eftir litabreytingar í Varmá vegna framkvæmdanna.
Formaður Einhverfusamtakanna segir sveitarfélög hafa brugðist börnum sem þurfa sérskólaúrræði. Afleiðingar úrræðaleysis geti verið langvarandi og birst víða.
Andstaða nágranna fyrirhugaðs athvarfs fyrir fólk í andlegum erfiðleikum varpar ljósi á samfélagslega fordóma gegn þessum hópi, að mati Geðhjálpar.
Fyrsti áfangi framkvæmda við Sjúkrahúsið á Akureyri kostar 40% minna en gert var ráð fyrir. Framkvæmdir hefjast í júní.
Vegagerðin vonast til að hægt verði að opna fyrir umferð um nýjan veg yfir Hornafjarðarfljót í næsta mánuði. Verklok hafa tafist um hálft ár, meðal annars vegna veðurs.
FH hleypti spennu í toppbaráttu Bestu deildar kvenna í fótbolta í gærkvöld þegar Hafnarfjarðarliðið varð það fyrsta í ár til að vinna Íslandsmeistara Breiðabliks í deildinni. Áhorfendamet var slegið á leiknum.