Hádegisfréttir

Leyft öllum aldurshópum

Hádegisfréttir 2. júlí 2026

Álagning olíufélaganna hefur aukist mikið undanfarin ár. Hún hækkaði í lok síðasta árs, rétt áður en olíugjald var lagt niður.

Stjórnvöld í Úkraínu fyrirskipuðu að sprengja skyldi Nord Stream-gasleiðslurnar haustið 2022. Maður sem er sagður hátt settur í Úkraínuher hefur verið ákærður í Þýskalandi.

Að minnsta kosti átján voru drepin í árásum Rússa á Kyiv höfuðborg Úkraínu í nótt. Árásirnar beindust meðal annars að hóteli og heilbrigðisstofnun.

Brotist var inn í Efstaleitisapótek í Reykjavík í gærkvöld. Innbrotsþjófurinn flúði af vettvangi á Hopp-deilibíl.

Hundruð björgunarliða frá sjö löndum keppast við að ná manni undan rústum í Venesúela, átta dögum eftir jarðskjálftana.

Breytingar á forgangsröðun jarðganga kalla á aukið viðhald á veginum um Fjarðarheiði, segir svæðisstjóri hjá Vegagerðinni. Hann tekur undir það að aukið fjármagn þurfi til viðhalds á vegum á Austurlandi.

Nærri tveimur milljónum gervihnatta verður skotið á sporbaug jarðar á næstu árum, gangi áform Space X eftir. Stjarneðlisfræðingar vara við því að gervihnettirnir spilli geimrannsóknum.

Lögregla í New York handtók par sem klifraði á topp Empire State-byggingarinnar, hífði upp fána og trúlofaði sig.

Ísland mætir Ítalíu í kvöld í undankeppni fyrir heimsmeistaramótið í körfubolta á næsta ári.

Birt
Aðgengilegt til
Rennur ekki út
Lengd

Hádegisfréttir

Útvarpsfréttir.

Þættir

,