Hádegisfréttir

Hádegisfréttir 19. apríl 2026

Fjármálaráðherra segir sterka varðstöðu um eiginhagsmuni í sjávarútvegi alla leið inn í þingsal því hægara sagt en gert breyta kerfinu þrátt fyrir þingmeirihluta.

Búlgarar ganga kjörborðinu í dag, í áttunda sinn á fimm árum. Samkvæmt skoðanakönnunum fær bandalag fyrrum forseta landsins flest atkvæði.

Mennta- og barnamálaráðherra segir Foreldrahús hafi sótt um talsvert hærri fjárveitingar en þurfi til rekstursins. Ekki hafi verið hægt verða við því. Til stendur loka húsinu eftir nokkra daga vegna fjárskorts.

Skotárás í höfuðborg Úkraínu í gær er rannsökuð sem hryðjuverk. Árásarmaður skaut fólk á götum úti og tók nokkra í gíslingu í matvörubúð.

Lögregla handtók karlmann á fimmtugsaldri fyrir sölu á læknadópi og fíkniefnum auk vopnalagabrots á bar í austurborginni í gærkvöld. Hann er enn í haldi lögreglu.

Elísabet Rut Rúnarsdóttir sló seint í gærkvöld Íslandsmetið í sleggjukasti þegar hún kastaði 72,89 metra á móti í Bandaríkjunum. Hún er um leið orðin örugg inn á Evrópumótið í sumar.

bjóða góðan dag er rótgróin og kurteis kveðja, en gæti það verið áróður á kjörstað í komandi borgarstjórnarkosningum? Við leitum svara við því í fréttatímanum.

Birt

19. apríl 2026

Aðgengilegt til

Rennur ekki út

Hádegisfréttir

Útvarpsfréttir.

Þættir

,