Hádegisfréttir

Hádegisfréttir 21. júlí 2025

Efnahagsþvinganir Evrópusambandsins gegn Rússum yfir íslenskt fyrirtæki. Rússnesk útgerð keypti meirihluta í fyrirtækinu skömmu fyrir innrásina í Úkraínu. Skip hennar eru talin hluti af skuggaflota Rússa.

Mikil gasmengun er á höfuðborgarsvæðinu, mesta sem mælst hefur frá því eldsumbrotin hófust á Reykjanesskaga. Vinnuskólar í Hafnarfirði og Reykjavík eru lokaðir.

Framleiðsla kísilverksmiðju PCC á Bakka við Húsavík var stöðvuð í gær. Forstjóri fyrirtækisins vonar starfsemi hefjist á í byrjun næsta árs.

Ísraelsher hefur hafið landhernað í borginni Deir al-Balah á Gaza, í fyrsta sinn frá því stríðið hófst. Yfirvöld á Gaza segja nítján hafi dáið úr hungri síðasta sólarhring.

Hætta skapaðist þegar maður stal bíl á lokuðu svæði Keflavíkurflugvallar í gær og ók yfir flugbraut þar sem verið var undirbúa flugtak.

Utanríkisráðherra mætir á fund utanríkismálanefndar Alþingis í dag til upplýsa þingmenn um fyrirhugaðar viðræður Íslands og Evrópusambandsins um öryggis- og varnarmál.

Og bandaríski kylfingurinn Scottie Scheffler er spila sig inn á lista yfir bestu kylfinga sögunnar.

Frumflutt

21. júlí 2025

Aðgengilegt til

Rennur ekki út
Hádegisfréttir

Hádegisfréttir

Útvarpsfréttir.

Þættir

,