Hádegisfréttir

Leyft öllum aldurshópum

Hádegisfréttir 9. september 2025

157 mál eru á þingmálaskrá ríkisstjórnarinnar. Forsætisráðherra segir tiltekt, verðmætasköpun og öryggi vera leiðarstef vetrarins.

Rauðgræna blokkin, með Jonas Gahr Støre leiðtoga norska verkamannaflokksins í fararbroddi, hélt naumlega meirihluta í þingkosningum í Noregi í gær. Støre verður áfram forsætisráðherra.

Utanríkisráðherra segir ríkisstjórnina ekki hafa skoðað að banna hergagnaflutning til Ísraels um íslenska lofthelgi. Spánverjar tilkynntu slíkt bann í gær.

Formaður VR óttast að aðhald sem ríkisstjórnin boðar í nýju fjárlagafrumvarpi verði að hluta til sótt í vasa launafólks.

Forsætisráðherra Frakklands biðst lausnar eftir afhroð í atkvæðagreiðslu um traustsyfirlýsingu á franska þinginu í gær. Þrýst er á forseta Frakklands að skipa nýjan forsætisráðherra sem fyrst.

Stjórnendur Alcoa Fjarðaráls funda með samninganefndum fagfélaga síðdegis, en starfsfólk hefur verið samningslaust í rúmt hálft ár. Að óbreyttu stefna fagfélögin að atkvæðagreiðslu um verkföll fyrir vikulok.

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu vonar að athugasemdir um reglur um leigubílaakstur verði teknar fyrir á Alþingi í vetur. Einn leigubílstjóri á yfir höfði sér sekt eftir umfangsmikið eftirlit lögreglu um helgina.

Útvarpsstjóri segir mögulegt að Ísland dragi sig úr keppni í Eurovision ef Ísrael tekur þátt á næsta ári.

Fáir virðast hafa trú á íslenskum sigri í kvöld þegar íslenska karlalandsliðið í fótbolta sækir Frakka heim til Parísar í undankeppni heimsmeistaramótsins sem haldið verður næsta sumar.

Birt
Aðgengilegt til
Rennur ekki út
Lengd

Hádegisfréttir

Útvarpsfréttir.

Þættir

,