Hádegisfréttir

Leyft öllum aldurshópum

Hádegisfréttir 7. maí 2025

Viðkvæm persónugögn, sem stolið var frá lögreglu og sérstökum saksóknara, voru meðal annars notuð til að selja þjónustu fyrirtækisins PPP, sem fjallað var um í Kveik í liðinni viku. Ólafur Þór Hauksson, héraðssaksóknari, segir að það sé mjög alvarlegt. Nýjar upplýsingar sýna umfang þeirra gagna sem var stolið.

Sakborningur í alvarlegu árásarmáli á Vopnafirði segist hafa framið líkamsárás í geðrofi en hafnar sökum um húsbrot og kynferðisofeldi. Aðalmeðferði hófst í Hérðaðsdómi Austurlands í morgun.

Alþjóðasamfélagið hefur verulegar áhyggjur af stigmögnun átaka kjarnorkuríkjanna Indlands og Pakistans. Pakistanski herinn hefur fengið leyfi til að svara loftárásum Indlands í gærkvöld.

Utanríkisráðherrar sex Evrópuríkja mótmæla áformum Ísraelsstjórnar um auknar hernaðaraðgerðir á Gaza. Meðal þeirra er utanríkisráðherra Íslands.

Fjórum starfsmönnum var sagt upp á þjóðminjasafninu í gær, þar af þremur fornleifafræðingum. Þjóðminjavörður segist þurfa að hagræða í rekstri en vill einnig breikka sérfræðiþekkingu starfsfólks.

Forsætisráðherra Spánar heitir rannsókn á orsökum víðtæks rafmagnsleysis þar og í Portúgal í apríl.

Rannsóknarmiðstöð landbúnaðarins kallar eftir því að bændur tilkynni um öll tilvik bógkreppu í lömbum. Unnið er að þróun erfðaprófs fyrir sjúkdómnum.

Á annað hundrað kardínála verða lokaðir inni í Sistínsku kapellunni í Páfagarði um miðjan dag. Þar verða þeir einangraðir frá umheiminum þar til þeir hafa náð saman um kjör á nýjum páfa.

Birt
Aðgengilegt til
Rennur ekki út
Lengd

Hádegisfréttir

Útvarpsfréttir.

Þættir

,