Hádegisfréttir

Leyft öllum aldurshópum

Hádegisfréttir 22. febrúar 2026

Efnaminna fólk og minnihlutahópar hafa ekki greitt aðgengi að ópíóíða meðferð að mati formanns Matthildar, samtaka um skaðaminnkun. Strangar kröfur og kostnaður geta komið í veg fyrir að fólk með fíknivanda klári meðferð.

Stjórnvöldum í Danmörku er ekki kunnugt um að bandarískt sjúkraskip sé á leiðinni til Grænlands líkt og Bandaríkjaforseti heldur fram. Forsætisráðherra Danmerkur hefur svarað þessum yfirlýsingum óbeint á samfélagsmiðlum.

Á sjötta hundrað bílar sátu fastir í mikilli ófærð og hríðarveðri á Suðurlandi í gær. Björgunarsveitir og bændur komu ökumönnum til aðstoðar

Morð á ungum manni sem var barinn til bana af pólistískum andstæðingum í Frakklandi þykir merki um djúpa gjá milli andstæðra póla í frönskum stjórnmálum. Þúsundir minntust hægri aðgerðarsinnans Quentin Deranque í borginni Lyon í gær.

Farþegum frá Bandaríkjunum fækkaði um 27 prósent í janúar miðað við sama mánuð í fyrra samkvæmt tölum Ferðamálastofu um brottfarir um Keflavíkurflugvöll.

Byssuskápar hafa selst í hundraðatali eftir að reglur um geymslu skotvopna voru hertar. Skáparnir eiga að tryggja öryggi og koma í veg fyrir að byssum sé stolið.

Lokadagur Vetrarólympíuleikanna í Mílanó og Cortina er í dag og verður leikunum slitið í kvöld. Sænska skíðagöngukonan Ebba Andersson vann 50 kílómetra göngu í morgun og Eileen Gu frá Kína varð sigursælasti skíðafimikeppandi sögunnar þegar hún vann hálfpípu kvenna.

Birt
Aðgengilegt til
Rennur ekki út
Lengd

Hádegisfréttir

Útvarpsfréttir.

Þættir

,