Hádegisfréttir

Leyft öllum aldurshópum

Hádegisfréttir 9. apríl 2024

Ný ríkisstjórn undir forystu Bjarna Benediktssonar verður líklega kynnt eftir hádegi. Sigurður Ingi Jóhannsson verður fjármálaráðherra. Gert er ráð fyrir að ríkisráð komi saman á Bessastöðum í kvöld.

Hópur eldri kvenna í Sviss hafði betur gegn svissneska ríkinu fyrir Mannréttindadómstóli Evrópu í morgun vegna aðgerðaleysis í loftslagsmálum. Úrskurður dómsins þykir sögulegur því hann er sá fyrsti um loftslagsmál.

Þrír kvenkyns barnalæknar á Landspítalanum flettu ofan af kynbundnum launamun á deildinni. Ein þeirra segir ástæðu til að ætla að þetta sé ekki einangrað dæmi.

Ísraelsher undirbýr innrás í Rafah á Gaza, á sama tíma og ísraelsk stjórnvöld taka þátt í viðræðum um vopnahlé. Ísraelsher hefur að meðaltali drepið 75 börn á dag á Gaza frá sjöunda október.

Dregið hefur úr hraunflæði eldgossins við Sundhnúk og landris í Svartsengi hefur aukist á sama tíma. Vísindamenn telja að það sem af er ári hafi innflæði kviku undir Svartsengi verið stöðugt.

Um þriðjungur skólastjóra grunnskóla og rúmur fjórðungur leik- og grunnskólakennara sjá ekki fyrir sér að vera í sama starfi eftir ár. Formaður Kennarasambandsins telur þetta mikið áhyggjuefni.

Íslenska kvennalandsliðið í fótbolta mætir Þýskalandi í dag í öðrum leik sínum í undankeppni EM 2025. Bæði lið byrjuðu undankeppnina á sigri.

Birt
Aðgengilegt til
Rennur ekki út
Lengd

Hádegisfréttir

Útvarpsfréttir.

Þættir

,