Hádegisfréttir

Leyft öllum aldurshópum

Hádegisfréttir 31.maí 2025

Atvinnuvegaráðherra segir að nýtt frum­varp um strand­veiðar tryggi gagn­sæi og sjálf­bærni. Það hafa staðið lengi til að tryggja 48 daga strand­veiðar. Hún skilur áhyggjur Hafrannsóknarstofnunar enda sé verið að víkja frá þeirra ráðgjöf.

Bandaríkjaforseti ætlar að hækka innflutningstolla á áli og stáli úr 25% í 50%. Hann segir þetta gert til að styrkja enn frekar stöðu bandarísks iðnaðar.

Íslensk hótel eru hvött til þess að taka þátt í hópmálsókn á hendur einu stærsta bókunarkerfi heims, Booking.com. Fyrirtækið misnotaði markaðsráðandi stöðu sína á um tuttugu ára tímabili, kom í veg fyrir verðsamkeppni og olli hótelum verulegu fjárhagslegu tjóni.

Varnarmálaráðherra Bandaríkjanna segir Kínverja undirbúa hernaðaraðgerðir til að raska valdajafnvæginu í álfunni. Kína ætli sér að ráða yfir stærri hluta Asíu en æskilegt sé.

Hoppukastalar, koddaslagur og sjóstakksund er meðal þess sem er í boði í Vestmannaeyjum í dag í tilefni sjómannadagshelgarinnar. Sjómenn verða heiðraðir um allt land á morgun.

Eftir jafntefli við Noreg í gærkvöld þarf íslenska kvennalandsliðið í knattspyrnu á sigri að halda gegn Frökkum á Laugardalsvelli á þriðjudag.

Birt
Aðgengilegt til
Rennur ekki út
Lengd

Hádegisfréttir

Útvarpsfréttir.

Þættir

,