Hádegisfréttir

Leyft öllum aldurshópum

Hádegisfréttir 13.apríl 2025

Kona um þrítugt hefur verið úrskurðuð í gæsluvarðhald vegna rannsóknar á láti manns um áttrætt. Konan er dóttir mannsins.

Þrjátíuogeinn hið minnsta var drepinn í morgun þegar Rússlandsher gerði loftárás á íbúðablokkir í úkraínsku borginni Sumy. Forseti Úkraínu segir árásina hryllilega – hún hafi verið gerð á venjulegt fólk í venjulegri borg.

Barna- og menntamálaráðherra hafnar ásökunum rektors og starfsfólks Kvikmyndaskóla Íslands um meinta valdníðslu. Hann segir að ráðuneytið hafi gert sitt besta til að tryggja nemendum annað námspláss

Tekist hefur að finna vinnu fyrir um helming þeirra sem misstu vinnuna í hópuppsögn sláturhússins á Blönduósi í byrjun mars. Sveitarstjóri segir alla hafa lagst á eitt til að milda höggið fyrir samfélagið.

Fjármálaeftirlit Seðlabankans er enn að rannsaka sölu á hlut ríkisins í Íslandsbanka - meira en þremur árum eftir að útboðið fór fram.

Sveitarstjórn Strandabyggðar hefur ákveðið að skoða sameiningu við Kaldrananeshrepp, Árneshrepp og Súðavíkurhrepp. Sveitarfélögin eigi sameiginlega hagsmuni í tækifærum í Ísafjarðardjúpi.

Norður-Írinn Rory McIlroy hefur tveggja högga forystu fyrir lokahring Mastersmótsins í golfi.

Birt
Aðgengilegt til
Rennur ekki út
Lengd

Hádegisfréttir

Útvarpsfréttir.

Þættir

,