Hádegisfréttir

Hádegisfréttir 24. júlí 2025

Ársverðbólgan hjaðnaði lítillega í júlí en fátt bendir til þess hún á undanhaldi. Frekari stýrivaxtalækkanir á þessu ári eru nær útilokaðar mati hagfræðings.

Taílendingar og Kambódíumenn saka hvorir aðra um hefja átök sem blossuðu upp á milli ríkjanna í morgun. Minnst ellefu almennir borgara hafa verið drepnir.

Dregið hefur úr virkni gossins á Reykjanesskaga. Áfram gýs úr einum gíg og hraunið rennur til austurs. Gosmóða er víðast hvar á landinu.

Tekjulágir feður eru líklegri til fullnýta rétt sinn til fæðingarorlofs en tekjulágar mæður. Þetta kemur fram í nýrri ársskýrslu Fæðingarorlofssjóðs.

Stangveiðimenn vilja aðgangsstýringu í veiðiár til koma í veg fyrir óæskilegir laxastofnar gangi í þær óhindrað. Veiðimenn kætast ekki þegar hálfrotnaðir hnúðlaxar bíta á.

Sigurgeir Svanbergsson varð hætta sundi sínu yfir Ermarsund í gær, nálægt ströndum Frakklands. Myrkur og straumar voru þá farin ógna öryggi hans.

Írar hafa fengið sig fullsadda af því hvernig þeir eru sýndir í bandarískum kvikmyndum. Stikla úr kvikmynd sem líklega verður aldrei framleidd vakti mikla athygli á samfélagsmiðlum á dögunum.

Frumflutt

24. júlí 2025

Aðgengilegt til

Rennur ekki út
Hádegisfréttir

Hádegisfréttir

Útvarpsfréttir.

Þættir

,