Hádegisfréttir

Leyft öllum aldurshópum

Hádegisfréttir 26. júlí 2025

Samningur um tolla milli Bandaríkjanna og Evrópusambandsins gæti orðið að veruleika eftir að Donald Trump Bandaríkjaforseti hittir Ursulu von der Leyen, leiðtoga ESB í Skotlandi á morgun.

Átök á landamærum Kambódíu og Taílands héldu áfram í dag, þriðja daginn í röð. Kambódísk stjórnvöld hafa farið fram á tafarlaust vopnahlé. Þrjátíu og þrír hafa fallið.

Hlýindin í sumar verða líklega til þess að jöklar landsins hopa enn frekar en fyrri ár, segir jöklafræðingur á Veðurstofunni. Uppistöðulón hafa fyllst fyrr í ár en áður sem bendir til að leysingar á jöklum verði miklar.

Norsk stjórnvöld ætla að berjast gegn fyrirhugðum verndartollum Evrópusambandsins á kísiljárn sem gætu tekið gildi eftir þrjár vikur. Norskir framleiðendur óttast um afkomu sína.

Brú sem eitt sinn lá yfir Fúlutjarnarlæk í Reykjavík virðist vera komin í ljós aftur. Brúin var merkt inn á kort frá árinu 1902, þar sem Laugavegur var eitt sinn, og uppgötvaðist við framkvæmdir Orkuveitunnar í sumar.

Fimm íslenskir keppendur eru mættir til Singapúr til að taka þátt í Heimsmeistaramótinu í sundi í 50 metra laug. Keppni hefst í nótt.

Birt
Aðgengilegt til
Rennur ekki út
Lengd

Hádegisfréttir

Útvarpsfréttir.

Þættir

,