Fagfjárfestar fá aðeins að kaupa hlutabréf í Íslandsbanka fyrir 2,4 milljarða, af rúmlega 90 milljarða hlut ríkisins, eftir að almenningur fékk forskot í hlutafjárútboðinu í vikunni. Yfir 31.000 manns keyptu hlut eða um 10 prósent Íslendinga yfir 18 ára aldri.
Litið er á fund sendinefnda Úkraínu og Rússlands í Istanbúl í dag sem framfaraskref en þó gera stjórnmálaskýrendur ekki ráð fyrir að hann eigi eftir að skila markverðum árangri í átt til friðar.
Foreldrar barna á Stuðlum segja ekki hægt að bíða lengur eftir nýju meðferðarúrræði. Gert er ráð fyrir að meðferðarheimili fyrir drengi verði opnað á Suðurlandi í lok október.
Nýtt hjúkrunarheimili með rúmlega 80 herbergjum verður reist við Nauthólsveg í Reykjavík, þar sem skrifstofur Icelandair voru áður. Ríkið leigir húsnæðið af fasteignafélaginu Reitum.
Héraðsdómur Reykjavíkur hefur ógilt ákvörðun lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu um að breyta störfum og verksviði yfirmanns eftir að samstarfskona hans ásakaði hann um kynferðislega áreitni og ofbeldisfulla hegðun í sinn garð.
Þingmenn stjórnarandstöðunnar gerðu athugasemdir við óheflað málfar félags- og húsnæðismálaráðherra á Alþingi í gær. Stjórnmálfræðingur segir ekki kveða við nýjan tón á Alþingi. Hver ráðherra hefur sinn stíl.
Sannkölluð einmuna blíða er víða um land, sérstaklega á Austurlandi og við spjöllum við sóldýrkendur í sundlauginni á Egilsstöðum í fréttatímanum.
VÆB-strákarnir verða þeir tíundu á svið í Eurovision á morgun. Ísland hefur ekki komist í úrslitin í þrjú ár.