Hádegisfréttir

Leyft öllum aldurshópum

Hádegisfréttir 12. ágúst 2026

Þung umferð er á vestanverðu landinu enda margir á ferðinni til að sjá sólmyrkvann sem best.

Það verður hvergi heiðskírt, en gæti rofað til á stöku stað. Veðurfræðingar rýna í kortin en finnst erfitt að spá fyrir um göt í skýjahulunni frá einni mínútu til annarrar. Birta Líf Kristinsdóttir fer yfir spána.

Fjölmenni kemur saman víða um land - Bein útsending frá myrkvafögnuðum hefst á RÚV klukkan eitt.

Nýja vatnslögnin til Vestmannaeyja skemmdist aðfaranótt sunnudags. Hlé hefur verið gert á lagningu hennar. Bæjarstjórinn í Vestmannaeyjum segir afleiðingarnar óljósar.

Þrettán hafa verið handteknir í tengslum rannsókn lögreglu á andláti karlmanns á Kársnesi í Kópavogi um helgina, þar af tveir í Evrópu. Eggvopni virðist hafa verið beitt við árásina.

Hátt í fjögurra þúsunda er saknað eftir jarðskjálfta í Kólumbíu á mánudag. Enn finnst þó fólk á lífi í rústum húsa.

Birt
Aðgengilegt til
Rennur ekki út
Lengd

Hádegisfréttir

Útvarpsfréttir.

Þættir

,