Eldarnir í Drammen eru þeir mestu í Noregi í seinni tíð, samkvæmt almannavörnum landsins. Slökkvistarf stóð í alla nótt. Enn logar í skógi við hverfið þar sem eldarnir brutust út í gær. Mikil mildi þykir að engin alvarleg slys hafi orðið.
Forstjóri Eimskips segir vonbrigði að sjóflutningar skuli ekki fá undanþágu frá losunarreglum ESB eins og tilkynnt var með flugsamgöngur í gær. Það komi niður á neytendum. Greiðslur Eimskips fyrir losunarheimildir skipta milljörðum króna á ári.
Stjórnvöld í Hollandi segjast engin vilyrði hafa gefið fyrir því að Ísland fái undanþágur frá sjávarútvegsstefnu ESB, líkt og utanríkisráðherra hefur gefið í skyn.
Gervigreindarumboðsmenn herja á íslenska rithöfunda og vilja kynna bækur þeirra gegn gjaldi. Mörgum íslenskum bókum virðist hafa verið hlaðið inn í gervigreindarforrit í leyfisleysi.
Maður sem er grunaður um að standa að baki skotárás norðan við Álaborg í Danmörku í gær hefur játað verknaðinn. Hann var leiddur fyrir dómara í dag.
Ljúfan matarilm leggur yfir Hljómskálagarðinn í Reykjavík um helgina. Bestu götubitavagnar landsins bjóða allskyns kræsingar til sölu, og keppa um titilinn, besti götubitinn.