Hádegisfréttir

Hádegisfréttir 7. maí 2026

Grunur er um annað hantaveirusmit sem tengist skemmtiferðaskipinu Hondiusi. Í Argentínu keppast menn við greina uppruna hópsýkingarinnar á skipinu.

Ríkisendurskoðandi íhugar leita réttar síns vegna málsmeðferðar forsætisnefndar á eineltisásökunum starfsfólks.

Stjórnvöld eru farin kvótasetja náttúruna, segir framkvæmdastjóri Landverndar, um tuttugu milljarða framkvæmdir Bláa lónsins í Þjórsárdal. Þær veki spurningar um hvernig fara eigi með þjóðlendur.

Bretar ganga til kosninga í sveitarstjórnum landsins í dag. Búist er við því Verkamannaflokkurinn, flokkur Keirs Starmers forsætisráðherra, bíði afhroð.

Aldrei hafa fleiri haft samband við hjálparsíma Rauða krossins vegna sjálfsvígshugsana. Þjónusta Hjálparsíma Rauða krossins verður bætt og fjármagn tvöfaldað samkvæmt nýjum samningi sem undirritaður er í hádeginu.

Varaþingmaður Sjálfstæðisflokksins vekur athygli á því þrátt fyrir allsherjar- og menntamálanefnd Alþingis hyggist mæla með því börn verði ekki vistuð í brottfararstöð stjórnvalda verði frelsissvipting þeirra ekki minni.

Um fjögur þúsund og þrjú hundruð 4300 atkvæði hafa verið greidd utan kjörfundar á höfuðborgarsvæðinu í sveitarstjórnarkosningunum. Sýslumaður segir það ekki hafa áhrif á kjörsókn einungis hægt greiða atkvæði á einum stað.

Úrslit ráðast á Íslandsmóti karla í handbolta í kvöld. Valur og FH, sigursælustu lið mótsins frá upphafi, leika hreinan úrslitaleik um titilinn á Hlíðarenda.

Birt

7. maí 2026

Aðgengilegt til

Rennur ekki út

Hádegisfréttir

Útvarpsfréttir.

Þættir

,