Hádegisfréttir 21. september 2026
Friedrich Merz Þýskalandskanslari sýnir engin merki um að hann hyggist íhuga stöðu sína sem leiðtogi Kristilegra Demókrata, þrátt fyrir afhroð flokksins í kosningunum í Mecklenburg…
Stjórnvöld í Íran hóta Bandaríkjunum og Ísrael hefndum eftir dráp á æðstaklerk landsins, Khamenei, í gær. Íranir komu saman í nótt og í morgun, ýmist til að syrgja hann eða fagna falli hans. Við ræðum við utanríkisráðherra í hádegisfréttum.
Norðvestan hríð eða stórhríð er spáð norðaustanverðu landinu eftir hádegi á morgun. Færð spillist líklega á fjallvegum. Appelsínugular og gular veðurviðvaranir hafa verið gefnar út.
Dómsmálaráðherra segir ótímabært að segja hvort lögreglustjóranum á Vestfjörðum verði vikið frá störfum, eftir að kvartað var undan hegðun hans á þorrablóti Flateyringa
Haukar urðu í gærkvöld bikarmeistarar karla í handbolta eftir öruggan sigur á ÍR.

Útvarpsfréttir.