Hádegisfréttir

Leyft öllum aldurshópum

Hádegisfréttir 27. maí 2025

Dómsmálaráðherra vill ekki staðfesta neitt um mögulegar breytingar á stöðu Helga Magnúsar Gunnarssonar vararíkissaksóknara. Fullyrt er að Helga Magnúsi hafi verið boðin staða vararíkislögreglustjóra.

Fyrrverandi forsætisráðherra Ísraels segir ísraelsk stjórnvöld fremja stríðsglæpi á Gaza. 79 hið minnsta hafa verið drepnir í árásum Ísraelshers síðasta sólarhringinn.

Fjögur börn eru á meðal hátt í 50 sem slösuðust þegar bíl var ekið inn í mannfjölda í Liverpool í gær. Einn hefur verið handtekinn. Málið er ekki rannsakað sem hryðjuverk.

Áttatíu missa vinnuna þegar kísilverksmiðju PCC á Bakka verður lokað í sumar. Sveitarstjóri Norðurþings segir þetta mikið högg fyrir samfélagið en segist fullviss um að það takist að opna aftur.

Vélarbilun leiddi líklega til þess að eins hreyfils flugvél var nauðlent á Suðurlandsvegi í gærkvöld, að mati rannsóknarnefndar samgönguslysa. Landhelgisgæslan lýsti yfir óvissustigi vegna sömu vélar í gær.

Íslenskum ungmennum líður illa andlega samanborið við ungt fólk í öðrum efnameiri ríkjum samkvæmt nýrri skýrslu Unicef um velferð barna.

Fullrúar hátt í tuttugu aðildarríkja Evrópusambandsins gagnrýna ungversk stjórnvöld fyrir lög sem takmarka réttindi hinsegin fólks. Rætt verður um mannréttindi og stöðu lýðræðis á ráðherrafundi ESB í Brussel í dag.

Fyrrverandi landsliðskona varð í gær Íslandsmeistari með Val í sínum síðasta leik; draumaendir á löngum ferli segir hún.

Birt
Aðgengilegt til
Rennur ekki út
Lengd

Hádegisfréttir

Útvarpsfréttir.

Þættir

,