
Hádegisfréttir
Útvarpsfréttir.
Engir fundir hafa verið boðaðir í kjaradeilu Icelandair og flugvirkja og hefst verkfall að óbreyttu á miðnætti í kvöld. Innviðaráðherra segir að engin ákvörðun hafi verið tekin um að setja lög á verkfallið.
Leiðtogar Bandaríkjanna, Danmerkur og Grænlands undirrita í dag samning um varnarviðbúnað Bandaríkjanna á Grænlandi. Fátt er vitað um innihald samningsins, en fréttir herma að Bandaríkin vilji opna tvær nýjar herstöðvar í landinu.
Allt of hægt gengur að draga úr losun gróðurhúsalofttegunda og Ísland langt á eftir áætlun í þeim efnum, segir umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra. Vinna þurfi miklu hraðar til að ná settum markmiðum.
Umferðarþing Samgöngustofu er haldið í dag. Markmið þess er að stuðla að ábyrgri og öruggri þátttöku ungs fólks í umferðinni.
Enn er óljóst hvort tveir rússneskir ólígarkar verða teknir af þvingunarlista Evrópusambandsins vegna innrásar Rússa í Úkraínu. Lettar settu sig upp á móti samkomulagi þess efnis í gær, en ESB-ríkin hafa það sem eftir lifir dags til að klára málið áður en aðgerðapakkinn rennur úr gildi.
Fyrstu niðurstöður nýs áhættumats í Grindavík verða kynntar íbúum í kvöld. Markmiðið er að hægt verði að tryggja öryggi þeirra sem dvelja, búa og starfa í bæjarfélaginu.
Við gerum okkur ferð með Strætó í fréttatímanum. Í dag er bíllausi dagurinn og ókeypis að ferðast með Strætó.
Framkvæmdastjóri fótboltaliðs ÍBV í Vestmannaeyjum telur það helstu áskorun liðsins fá heimamenn í liðið, þótt leið þeirra í aðalliðið sé sú stysta í efstu deild í Evrópu, að hans mati.

Útvarpsfréttir.