
Hádegisfréttir
Útvarpsfréttir.
Í nýju áhættumati frá leyniþjónustu danska hersins segir að Rússar haldi áfram fjölþátta-árásum á NATO-ríki og Vesturlönd næstu mánuði. Ógnin hefur ekki verið meiri frá lokum kalda stríðsins segir varnarmálaráðherra Danmerkur.
Guðmundur Ingi Kristinsson, fyrrverandi ráðherra fékk skilaboð frá aðstoðarkonu sinni og eiginkonu Ragnars Þórs Ingólfssonar fjórum dögum áður en Ragnar tók við ráðherraembætti. Í skilaboðunum segir að Guðmundur hafi tvær leiðir í stöðunni: að tilkynna um afsögn eða stríð.
Yfirmaður greiningardeildar Ríkislögreglustjóra vill að sérsveitin fái fjármagn til að fullmanna öll stöðugildi. Færri eru í sérsveit Ríkislögreglustjóra en heimild er fyrir á sama tíma og útköllum fjölgar.
Rúta með 40 skólabörnum ók út af veginum á Fagradal í morgun. Enginn slasaðist en börnin fengu áfallahjálp.
Dómstóll í Washington D.C. hefur skipað bandarískum stjórnvöldum að veita þremur fjölmiðlum aftur aðgang að Hvíta húsinu.
Gervigreindarlíkan tæknifyrirtækisins OpenAI komst inn í tölvukerfi ástralskra stjórnvalda fyrir nokkrum mánuðum. Fyrirtækið lét áströlsk stjórnvöld ekki vita af atvikinu fyrr en nýlega.
Sendlar Wolt funda með forsvarsmönnum fyrirtækisins á Íslandi í dag til að ræða kjör sín.
Sveitarfélög vilja leggja sitt af mörkum til að ná niður verðbólgu með því að halda aftur af gjaldskrárhækkunum um áramótin.
Erkifjendurnir FH og Haukar mætast í kvöld í efstu deild karla í handbolta. Sérfræðingur telur að þar mætist hraðasta sóknin og besta vörnin.

Útvarpsfréttir.