
Hádegisfréttir
Útvarpsfréttir.
Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra segist opin fyrir viðveru fleiri hermanna á vegum NATO hér á landi til varna en telur ekki þörf á að koma upp nýrri varanlegri herstöð.
Fjöldi Palestínumanna hefur í dag hrakist úr tjöldum sínum vegna mikillar úrkomu. Flætt hefur inn í fjölda tjalda og hvergi skjól að fá.
Maðurinn sem braust inn í svínabú Stjörnugríss sakar fyrirtækið um að ljúga að fjölmiðlum um ástand dýra sinna.
Tækniskólinn krefst tugmilljóna bóta frá Hafnarfjarðarbæ sem stóð ekki við samkomulag um lóð. Nýr skóli gæti risið í Úlfarsárdal eða Keldnaholti.
Forseti Paragvæ er í stofufangelsi og varaforsetinn hefur tekið við embættinu -- eftir að seðlabankinn tók yfir stærsta bannka landsins, sem forsetinn átti hlut í.
Í desember ætti að skýrast hvort gagnaver Eyrie DC rísi á Bakka. Skipulagsráð hefur samþykkt úthlutun lóðar og framundan er að fyrirtækið grafi þar yfir 40 tilraunaholur.
Uppselt er á allar sýningar á söngleiknum Þegar Trölli stal jólunum fram yfir áramót, en söngleikurinn er frumsýndur í Borgarleikhúsinu í dag. Við kíkjum í leikhús í fréttatímanum.

Útvarpsfréttir.