Hádegisfréttir

Hádegisfréttir 26. maí 2026

Fjórir létust, þar af tvö börn, þegar skólarúta varð fyrir lest í Belgíu í morgun. Rútan keyrði út á lestarsporið framhjá öryggisslá.

Umræðu um fyrirhugaða þjóðaratkvæðagreiðslu um hefja á viðræður við Evrópusambandið lýkur óbreyttu á Alþingi í dag. Stefnt er á atkvæðagreiðslu á morgun.

Sjálfstæðisflokkurinn í Hafnarfirði, Samfylking og Viðreisn kynna meirihlutasáttmála sinn þar í dag. Á meðan fréttist lítið af meirihlutaviðræðum í Reykjavík.

Boranir Veitna hefjast á í Skammadal í Mosfellssveit í dag. Gripið var til ráðstafana eftir litabreytingar í Varmá vegna framkvæmdanna.

Formaður Einhverfusamtakanna segir sveitarfélög hafa brugðist börnum sem þurfa sérskólaúrræði. Afleiðingar úrræðaleysis geti verið langvarandi og birst víða.

Andstaða nágranna fyrirhugaðs athvarfs fyrir fólk í andlegum erfiðleikum varpar ljósi á samfélagslega fordóma gegn þessum hópi, mati Geðhjálpar.

Fyrsti áfangi framkvæmda við Sjúkrahúsið á Akureyri kostar 40% minna en gert var ráð fyrir. Framkvæmdir hefjast í júní.

Vegagerðin vonast til hægt verði opna fyrir umferð um nýjan veg yfir Hornafjarðarfljót í næsta mánuði. Verklok hafa tafist um hálft ár, meðal annars vegna veðurs.

FH hleypti spennu í toppbaráttu Bestu deildar kvenna í fótbolta í gærkvöld þegar Hafnarfjarðarliðið varð það fyrsta í ár til vinna Íslandsmeistara Breiðabliks í deildinni. Áhorfendamet var slegið á leiknum.

Birt

26. maí 2026

Aðgengilegt til

Rennur ekki út

Hádegisfréttir

Útvarpsfréttir.

Þættir

,