Hádegisfréttir

Leyft öllum aldurshópum

Hádegisfréttir 27. júní 2026

Enn er leitað í kappi við tímann að fólki á lífi í húsarústum eftir jarðskjálftana í Venesúela. Forseti landsins segir enn von á að fleiri finnist en hún fari þverrandi.

Mikil óvissa er um olíuflutninga um Hormússund eftir að Íranar réðist í flutningaskip í gær. Bandaríkjaforseti segir að árásum verði svarað af hörku.

Paul Watson segir allt verða gert til að koma í veg fyrir veiðar Hvals á langreyði. Skip samtaka hans er nú á leið til landsins.

Stórt hrun varð úr Reynisfjalli austan við Hálsanefshellinn í stuðlaberginu. Heimamaður segir að hrunið komi úr að minnsta kosti 100 metra hæð.

Hitamet var sett í Danmörku nú rétt fyrir hádegi þar sem hitinn fór í 36,6 gráður. Fyrra metið var frá því í ágúst 1975.

Lokaumferð riðlakeppninnar á HM í fótbolta lýkur í nótt.

Birt
Aðgengilegt til
Rennur ekki út
Lengd

Hádegisfréttir

Útvarpsfréttir.

Þættir

,