Enn er ósamið um frestun þingfunda á Alþingi og nokkur stór mál standa út af. Samkvæmt starfsáætlun fara þingmenn í sumarfrí á föstudag en eldhúsdagsumræður eru í kvöld.
Ísland er friðsælasta land í heimi nítjánda árið í röð en ófriður eykst á heimsvísu.
Rússland er að byggja upp hernaðargetu við norður- og austurjaðar NATO, samkvæmt nýrri rannsókn norrænna fjölmiðla. Herstöðvar hafa verið stækkaðar og innviðir búnir undir fjölgun hermanna.
Útlit er fyrir blíðskaparveður næstu daga. Hiti getur náð tuttugu stigum á suðvestanverðu landinu á morgun. Sumarið er byrjað þetta er þó skammgóður vermir, segir veðurfræðingur.
Fimmti hver íbúi á Íslandi er innflytjandi og hefur hlutfall þeirra nær þrefaldast á fimmtán árum.
Ríkisendurskoðun telur að farsældarlög hafi vakið óraunhæfar væntingar. Í lögunum er ekkert fjallað um hvernig á að auka þjónustu, stytta bið eða bæta úrræði.
Maður sem varð fyrir hrottalegri árás í Belfast á Norður-Írlandi, missti annað augað. Óeirðir hafa brotist út á Norður-Írlandi eftir árásina.