Hádegisfréttir

Leyft öllum aldurshópum

Hádegisfréttir 14. maí 2026

Aðeins helmingur innflytjendaforeldra nær endum saman. Formaður Eflingar segir sligandi leiguverð hafa einna mest að segja og villl setja bremsu á leiguverð.

Enn eykst þrýstingurinn á Keir Starmer forsætisráðherra Bretlands og leiðtoga Verkamannaflokksins. Wes Streeting heilbirgðisráðherra landsins hefur sagt af sér og lýst yfir vantrausti á Starmer.

Dómsmálaráðherra segir að ekki komi til greina að stefna lífi annarra í hættu til að endurheimta jarðneskar leifar manns sem féll í sprungu í Grindavík fyrir tveimur árum.

Forsetar Kína og Bandaríkjanna voru ánægðir með fund sem þeir áttu í morgun en gefa lítið upp um innihaldið. Forseti Kína sagði ríkin eiga að vinna saman frekar en vera keppinautar

Ríkisstjórn Lettlands riðar til falls vegna viðbragða við drónahernaði Rússlands og Úkraínumanna. Forsætisráðherrann tilkynnti um afsögn sína í morgun.

16-liða úrslitum bikarkeppni karla í fótbolta lýkur í dag með þremur leikjum.

Birt
Aðgengilegt til
Rennur ekki út
Lengd

Hádegisfréttir

Útvarpsfréttir.

Þættir

,