Hádegisfréttir

Hádegisfréttir 6. október 2025

Viðræður Hamas, Ísraelsmanna og Bandaríkjamanna, um tilögur vopnahléi, á Gaza hefjast í Egyptalandi í dag og bjartsýni er um árangur. Ísraelsmenn halda áfram loftárásum á Gaza þrátt fyrir tilmæli Bandaríkjamanna

Leikskólastjórar í borginni segjast ánægðir með boðaða Reykjavíkurleið í leikskólamálum. Starfsumhverfið erfitt og íslensk börn séu óeðlilega lengi í leikskólanum.

Sveitarfélög á Suðurnesjum sakna þess ekki hafi verið haft meira samráð við þau um brottfararstöð fyrir hælisleitendur sem þar kann rísa.

Forsætisráðherra Frakklands sagði af sér í morgun, aðeins hálfum sólarhring eftir hann kynnti nýja ríkisstjórn. Stjórnarandstæðingar vilja kosningar og ítreka kröfu um forsetinn segi af sér.

Bændur og forsvarsmenn Mjólkursamsölunnar segja drög nýju frumvarpi um breytingar á búvörulögum hafa komið verulega á óvart. Verið kortleggja möguleg áhrif breytinganna.

Formaður læknafélags Reykjavíkur segir áhyggjuefni ríkið geti sett lög sem snúi við ákvæðum rammasamninga, sem samið var um við sérgreinalækna fyrir tveimur árum.

Það ræðst á stjórnarfundi Ríkisútvarpsins í lok mánaðar hvort RÚV greiðir atkvæði með brottvikningu Ísraels úr Eurovision.

Um 200 fjallgöngumenn eru fastir í hlíðum Everest. Þar hefur snjó kyngt niður síðan á föstudag.

Víkingur varð í gær Íslandsmeistari í knattspyrnu karla þegar liðið vann FH á heimavelli. Enn eru tvær umferðir eftir af mótinu.

Frumflutt

6. okt. 2025

Aðgengilegt til

Rennur ekki út
Hádegisfréttir

Hádegisfréttir

Útvarpsfréttir.

Þættir

,