Hádegisfréttir

Leyft öllum aldurshópum

Hádegisfréttir 1. maí 2025

Bandaríkin fá aðgang að úkraínskum auðlindum samkvæmt samningi sem ríkin undirrituðu í gær. Bandaríkjamenn ætla að halda áfram að aðstoða Úkraínumenn með loftvarnir.

Götum í miðborg Reykjavíkur var lokað í morgun þegar tilkynnt var um vopnaðan mann í heimahúsi. Einn var handtekinn í aðgerðum lögreglu.

Forstjóri Icelandair gerir ráð fyrir að félagið hefji flug til Hornafjarðar í haust. Notaðar verða dash-200 vélar á flugleiðinni fyrst um sinn. Þetta gæti haft áhrif á ákvörðun félagsins um að hætta með áætlunarflug til Ísafjarðar.

Sænskur blaðamaður var dæmdur í 11 mánaða skilorðsbundið fangelsi í Tyrklandi, fyrir að móðga forseta landsins. Hann á einnig yfir höfði sér dóm fyrir mun alvarlegri sakir.

Baráttudagur verkalýðsins er haldinn hátíðlegur um allt land í dag undir yfirskriftinni Við sköpum verðmætin. Á Akureyri eru hundrað ár liðin frá því fyrst var haldið upp á fyrsta maí.

Varaformaður Bifhjólasamtakanna Sniglanna segir ástandið á vegum landsins alvarlegt og kallar eftir úrbótum. Samtökin ætla í dag að afhenda Vegagerðinni afrakstur dósasöfnunar sem samtökin hafa staðið fyrir.

Úrslitaeinvígi úrvalsdeildar kvenna í körfubolta hefst í kvöld. Þar mætast deildarmeistarar Hauka og bikarmeistarar Njarðvíkur.

Birt
Aðgengilegt til
Rennur ekki út
Lengd

Hádegisfréttir

Útvarpsfréttir.

Þættir

,