Hádegisfréttir

Leyft öllum aldurshópum

Hádegisfréttir 23. október 2024

Að minnsta kosti tíu börn hafa veikst í leikskóla í Reykjavík þar sem e-coli sýking hefur verið staðfest. Sóttvarnarlæknir segir hópsýkinguna alvarlega - þrjú börn hafa verið lögð inn á spítala.

Það stefnir í verkföll kennara á þriðjudag. Félagsdómur dæmdi í morgun verkfallsboðanir þeirra löglegar. Formaður Kennarasambandsins segir að deilendum beri mikið í milli.

Rússlandsforseti segir að til greina komi að leiðtogar BRICS ríkjanna, þar á meðal Kína og Indlands, hlutist til um friðarviðræður Rússa og Úkraínumanna. Framkvæmdastjóri Sameinuðu þjóðanna tekur þátt í leiðtogafundi BRICS-ríkja sem hófst í Rússlandi í dag.

Utanríkisráðherrar Norðurlandanna hafa þungar áhyggjur af því ef stjórnvöld í Ísrael banna starfsemi UNRWA, Palestínuflóttaaðstoðar Sameinuðu þjóðanna á Vesturbakkanum og Gaza. Slíkt myndi bitna á hundruðum þúsunda almennra borgara og mögulega vera brot á alþjóðalögum.

Stuðlar voru opnaðir á ný í hádeginu, þeim var lokað eftir brunann á laugardaginn. Börn og ungmenni sem þar voru vistuð eru komin þangað aftur.

Birt
Aðgengilegt til
Rennur ekki út
Lengd

Hádegisfréttir

Útvarpsfréttir.

Þættir

,