Hádegisfréttir

Leyft öllum aldurshópum

Hádegisfréttir 7. september 2023

Framkvæmdastjóri Betri samgangna segir koma til greina að seinka framkvæmdum úr samgöngusáttmálanum. Fjármálaráðherra vill endurskoða fjárhagslegar forsendur sáttmálans.

Samskip segja rangt að yfir 130% verðhækkun til Alcoa Fjarðaáls árið 2008 hafi verið vegna samráðs við Eimskip. Samkeppniseftirlitið hrapi að ályktunum . Verðhækkun hafi verið vegna lífróðurs fyrirtækisins og til að fyrirbyggja fækkun siglinga.

Borgaryfirvöld í Nýju-Delí á Indlandi hafa gripið til ráðstafana til að halda öpum í hæfilegri fjarlægð frá fundi leiðtoga G-20 ríkjanna sem hefst um helgina. Nokkrir karlar hafa verið þjálfaðir í að herma eftir öskrum stórra apa til að fæla litla apa.

Helgu Völu Helgudóttur, fyrrverandi þingmanni Samfylkingarinnar og fjölskyldu hennar, var hótað í sumar vegna kaupa Íslands á COVID-19 - bóluefni. Hún segir ekkert réttlæta að fjölskyldum þingmanna sé hótað.

Maður sem hefur verið ákærður fyrir hryðjuverk slapp úr fangelsi í Bretlandi í gær og gengur enn laus. Hann slapp með því að festa sig undir matarflutningabíl.

Októberfest Stúdentaráðs Háskóla Íslands hefst í dag - þetta er í nítjánda skipti sem hátíðin er haldin og búist er við mörg þúsund gestum.

Tveir margreyndir landsliðsmenn, þeir Aron Pálmarsson og Alexander Petersson snúa aftur á Íslandsmótið í handbolta eftir áralanga fjarveru. Mótið hefst í kvöld, en 20 ár eru frá síðasta deildarleik Alexanders á Íslandi.

Birt
Aðgengilegt til
Rennur ekki út
Lengd

Hádegisfréttir

Útvarpsfréttir.

Þættir

,