Hádegisfréttir

Hádegisfréttir 22. júlí 2026

Forseti Úkraínu hefur rekið yfirmann hersins eftir fjölmenn mótmæli. Vinsæll varnarmálaráðherra, sem var rekinn í síðustu viku, snýr aftur í nýtt hlutverk innan ríkisstjórnarinnar.

Atvinnuvegaráðherra þykir miður ungir bændur taki einróma afstöðu gegn Evrópusambandinu. Hún segir bændur á Norðurlöndunum innan ESB vera ánægðari en þeir telji þeir myndu verða utan þess.

Dóttir konu sem lést í umönnun læknis árið 2019 vonar Landsrétttur komist annarri niðurstöðu en héraðsdómur sem vísaði málinu frá.

Fimmtán ár eru frá hryðjuverkaárásunum í Útey og Ósló. Forsætisráðherra Noregs hvetur landsmenn til sporna við öfgavæðingu ungmenna og dýrkun á hryðjuverkamönnum. Nýr minnisvarði um fórnarlömb hryðjuverkana hefur verið afhjúpaður.

Hlutfall ungs fólks á leigumarkað er í hærra lagi og vísbendingar eru um margt ungt fólk hafi farið úr foreldrahúsum í leiguhúsnæði síðastliðið ár.

Afturelding og Breiðablik mætast í úrslitum Mjólkurbikars karla í fótbolta í september. Afturelding vann Fylki í gærkvöld í vítaspyrnukeppni.

Birt

22. júlí 2026

Aðgengilegt til

Rennur ekki út

Hádegisfréttir

Útvarpsfréttir.

Þættir

,