Andy Burnham tók við embætti forsætisráðherra Bretlands í morgun. Forveri hans sagðist ljúka störfum sáttur og með bros á vör.
Áform Orkusölunnar um tvær vindmyllur við Lagarfossvirkjun á Fljótsdalshéraði eru umdeild. Fulltrúar í sveitarstjórn gagnrýna skort á samráði.
Evrópusambandið sektar kínversku netverslunina Ali Express um nær áttatíu milljarða króna fyrir að gera ekki nóg til að stöðva sölu á hættulegum og ólöglegum vörum.
Þyrlur Landhelgisgæslunnar hafa farið í nær helmingi fleiri útköll það sem af er júlí en á sama tíma í fyrra.
Enginn umsækjandi um starf sveitarstjóra í Langanesbyggð uppfyllti hæfniskröfur. Byggðaráð ætlar að taka sinn tíma til að finna rétta manneskju í starfið.
Tveir menn voru handteknir fyrir alvarlega líkamsárás í gærkvöld. Einn var handtekinn fyrir vopnaburð og fíkniefnalagabrot. Sá hafði útbúið handfang á steypustyrktarjárn.
Judith Polgar, stórmeistari í skák, gæti orðið næsti forseti Ungverjalands. Hún keppti um tíma fyrir Taflfélag Reykjavíkur.
Lúsmý setur mark sitt á sumarfrí landsmanna – skordýrafælur eru víða uppseldar, kláðabani og viftur rjúka út og fólk virðist bitið meira en oft áður.