Stríð Bandaríkjanna og Írans magnast enn. Bandaríkin hafa gert linnulausar árásir á Íran síðan í nótt og Íranar sprengdu tvö flutningaskip á Hormús-sundi. Hafnbann Bandaríkjanna á írönsk skip tekur gildi í kvöld.
Hagfræðingur Húsnæðis- og mannvirkjastofnunar segir skýr merki um samdrátt alls staðar í byggingariðnaðinum. Atvinnuleysi sé áhyggjuefni.
Rússar skoða að beina skipum frá Azov-hafi vegna árása Úkraínumanna. Bandalagsþjóðir Úkraínu lofuðu á sameiginlegum leiðtogafundi í gær meiri stuðning við loftvarnir landsins í stríðinu gegn Rússum.
Formaður Eflingar segir ný viðmið fyrir ræstingarútboð ríkisins vera lykillinn til að uppræta vandamál geirans.
Íslenskt tónlistarfólk hefur orðið undir á streymisveitum. Plötuútgefandi segir erfiðara að koma íslenskri tónlist á framfæri þegar hlustendur hafa alla heimsins tónlist í vasanum.
Ambur eða hvalaæla sem finnst í íslenskum fjörum getur verið milljóna virði og eftirsótt hráefni í dýrustu ilmvötn heims.
Bastilludagurinn, þjóðhátíðardagur Frakklands er í dag - og Frakkar mæta Spánverjum í fyrri undanúrslitaleik heimsmeistaramóts karla í fótbolta í kvöld.