Hádegisfréttir

Leyft öllum aldurshópum

Hádegisfréttir 3. apríl 2024

Katrín Jakobsdóttir hefur rætt við formenn stjórnarflokkanna um mögulegt forsetaframboð. Hún segist íhuga alvarlega að bjóða sig fram og ætlar að greina frá ákvörðun sinni á allra næstu dögum.

Utanríkisráðherrar NATO-ríkjanna ræða tillögu um hundrað milljarða evra langtímastuðning við Úkraínu. Fundur ráðherranna hófst í Brussel í morgun. Athygli vekur að Bjarni Benediktsson er ekki á fundinum.

Níu eru látnir og hundrað er enn saknað eftir mikinn jarðskjálfta í Taívan. Íslendingar búsettir á eyjunni segja allt hafa leikið á reiðiskjálfi.

Sjúkrasjóður Félags hjúkrunarfræðinga er tómur og eigið fé hans neikvætt um tugi milljóna. Millifæra þarf úr öðrum sjóðum félagsins svo hann geti staðið við skuldbindingar.

Leikskóla í Reykjavík var lokað fyrir páska og hann hreinsaður hátt og lágt vegna sníkjudýrs sem getur valdið magakveisu.

Guðmundur Felix Grétarsson hefur bæst í hóp þeirra sem ætla í forsetaframboð.

Forseti Botsvana hótar að senda 20.000 fíla til Þýskalands vegna deilu um náttúru- og dýravernd. Þannig geti Þjóðverjar reynt á eigin skinni hvernig sambúð við dýrin gengur fyrir sig.

Íslenska kvennalandsliðið í handbolta getur farið langleiðina með að tryggja sér sæti á EM með sigri á Lúxemborg í dag.

Birt
Aðgengilegt til
Rennur ekki út
Lengd

Hádegisfréttir

Útvarpsfréttir.

Þættir

,