Leiðtogafundur Evrópusambandsins, þar sem fjallað verður um varnar- og öryggismál, er í Danmörku í dag og mikill viðbúnaður er við þinghúsið í Kaupmannahöfn. Þór Jónsson sviðsstjóri hjá Norrænu ráðherranefndinni / fv fjölmiðlamaður Kaupmannahöfn.
Í dag er alþjóðlegi kaffidagurinn. Íslendingar eru kaffiþjóð og við drekkum mikið kaffi. En nú er blikur á lofti. Kaffiverð ríkur upp vegna loftlagsbreytinga er sagt og spurning er hvort kaffi verði munaðarvara í nánustu framtíð. Við fengum Sonju Grant, sem veit allt um kaffi, til okkar til að ræða kaffiheiminn og framtíðina.
Á morgun fagnar Garðyrkjufélag Íslands 140 ára afmæli en félagið var stofnað árið 1885. Það hlýtur að teljast nokkuð gott en hvað voru menn að velta fyrir sér í garðyrkju á þessum tíma og hverjar eru aðaláherslurnar í dag ? Guðríður Helgadóttir - Garðyrkju Gurrý er formaður félagsins hún kom til okkar.
Á SUNNUDAGSKVÖLDIÐ verður fyrsti þátturinn af nýrri þáttarröð, Felix og Klara sýndur á RUV.
Þetta er leikin Íslensk þáttaröð um fyrrverandi tollvörðinn Felix sem flyst ásamt eiginkonu sinni, Klöru, í þjónustuíbúð fyrir aldraða í Reykjavík. Á meðan Klara nýtur frelsisins rankar Felix við sér í innihaldslausum hversdagsleika eftir langa starfsævi og leitar tilgangs. Leikstjórinn Ragnar Bragason. og Jón Gnarr komu til okkar.
16 október næstkomandi verða haldnir útgáfutónleikar í Bæjarbíói í Hafnarfirði.
Þar kemur fram hljómsveitin Sycamore tree ásamt góðum gestum og saman ætla þau að fagna útgáfu plötunnar Scream sem kom út fyrr á árinu en verður endurútgefin í þessum mánuði með nýjum aukalögum.
Ágústa Eva og Gunni Hilmars mæta í Síðdegisútvarpið ásamt Stefáni Magnússyni
Við ræddum í gær við formann bæjarráðs Reykjanesbæjar vegna breytinga á leiðarkerfi Strætó á landsbyggðinni sem Vegagerðin sér um en fækka á stoppistöðvum í Reykjanesbæ fyrir leið 55 úr átta í tvær. Hulda Rós Bjarnadóttir, sérfræðingur í almenningssamgöngum hjá Vegagerðinni, kemur til okkar til að ræða þessar breytingar á leiðum landsbyggðar strætó.