Síðdegisútvarpið

Leyft öllum aldurshópum

Mótmæli, Latibær á fertugsaldri, skiptinemar og ruslatunnur í ranghölum

Mótmæli sem brutust út í los Angeles eftir aðgerðir innflytjendastofnunar Bandaríkjanna virtust í rénun í gærkvöldi. Hallgrímur Indriðason fréttamaður fór yfir stöðuna með okkur.

Það bárust fréttir af því að rafmagn hefði farið af á stórum hluta Suðurlands i morgun eftir bilun í Hvolsvallarlínu, en rafmagnsleysið var umfangsmikið þar sem ekki er hringtenging rafmagns um Suðurland. Við heyrðum í Írisi Róbertsdóttur bæjarstjóra í Vestmannaeyjum sem sagði ástandið óásættanlegt.

Síðustu ár hefur sorpílátum fjölgað um land allt, ekki síst vegna aukinnar flokkunar. Það sem á að stuðla að sjálfbærni og betra umhverfi getur þó skapað vandamál ef ílátin eru illa staðsett eða aðgengi þeirra erfitt bæði fyrir notendur og starfsfólk í sorphirðu. Nú hefur starfsfólk Terra sett af stað átak í þeim tilgangi að vekja okkur öll til umhugsunar um það að það er fólk sem sér um að tæma tunnurnar og því sé mikilvægt að aðgengi sé gott og hreinlæti til fyrirmyndar. Við heyrðum í Önnu Jónu Kjartansdóttur öryggis og gæðastjóra hjá Terra

Latibær fagnar 30 ára afmæli um þessar mundir og af því tilefni hefur verið blásið til heljarinnar heilsuátaks undir nafninu íþróttanammi sem miðar að því að auka neyslu barna á ávöxtum og grænmeti. Íþróttaálfurinn Magnús Scheving kom til okkar.

Íslenska karlalandsliðið í knattspyrnu mætir Norður-Írum í vináttulandsleik í Belfast nú á eftir. Eftir sigur á skotum fyrir helgi gæti íslenska liðinu tekist að vinna tvo leiki í röð sem hefur ekki gerst í háa herrans tíð. Við fórum yfir stöðuna með Almari Ormarssyni íþróttafréttamanni.

Skiptinemasamtökin AFS leita að fósturfjölskyldum fyrir18 nemendur sem koma hingað til lands 15 ágúst nk. og eru hér ýmist í 3, 5, eða 10 mánuði. Við fengum til okkar Ingunni Ólafsdóttur sem er framkvæmdastjóri AFS samtakanna

Birt
Aðgengilegt til
Rennur ekki út
Lengd

Síðdegisútvarpið

Þau Hrafnhildur Halldórsdóttir, Hólmfríður María Ragnhildardóttir og Rúnar Róbertsson halda landanum vel upplýstum um menn og málefni á leið úr vinnu. Þau fylgjast með fréttum og dægurmálum og spila nóg af góðri tónlist.

Þættir

,