Mikið álag fylgir landbúnaðarstörfum en ekkert kerfi er til staðar sem tryggir íslenskum bændum afleysingu ef upp koma veikindi eða annars konar forföll. Heiðbrá Ólafsdóttir, varaþingmaður Miðflokksins, vill að þessu verði breytt og að ríkið, í samstarfi við Bændasamtökin, komi á laggirnar afleysingaþjónustu. Við ræddum við Heiðbrá um málið.
Geðhjálp telur sig ekki hafa aðra kosti en að selja húsnæði sem átti að nota sem skjólshús fyrir fólk sem glímir við andlega erfiðleika. Íbúar í nágrenninu gáfu skýr skilaboð um að vilja ekki slíka starfsemi í hverfið. Grímur Atlason, framkvæmdastjóri Geðhjálpar, fór yfir málið með okkur.
Ferðasumarið er að byrja og landsmenn margir farnir að velta fyrir sér hvernig hægt sé að nýta sumarfríið. Við fengum til okkar Hörð Magnússon, framkvæmdastjóra ferðafélagsins Útivistar, til að segja okkur frá því helsta sem félagið hefur verið að gera og fórum yfir hvað er fram undan í sumar.
Brotist var inn í einbýlishús á Kársnesi í Kópavogi um helgina og ýmsum verðmætum stolið. Svo virðist sem að um fagmenn hafi verið að ræða en sneitt var hjá öryggiskerfinu sem var á staðnum. Sigursteinn Óskarsson er sá sem lenti í þessu og hann var á línunni hjá okkur.
Spánarspjall var á dagskrá en þar heyrðum við í okkar manni suður á Spáni, Jóhanni Hlíðar, sem sagði okkur frá spillingarmáli fyrrverandi forsætisráðherra Spánar, snákum sem hafa numið land á Ibiza og morðinu á stofnanda verslunarkeðjunnar Mango.
Sundgarpurinn Sigurgeir Svanbergsson ræðst ekki á garðinn þar sem hann er lægstur en um þessar mundir er hann að æfa fyrir stærsta sundverkefnið sem hann hefur tekið sér fyrir hendur, að synda niður Lagarfljótið. Hann verður sá fyrsti til að leggja þessa þrekraun á sig en vegalengdin nemur um 50 til 60 kílómetrum, allt er þetta gert til styrktar Píeta-samtökunum. Við hringdum í Sigurgeir og fengum að vita hvernig undirbúningurinn hefur gengið.