Reykjanesbrautin, flugbætur og haustlaukar
Þegar Vegagerðin fékk afhenta nýja tvöföldun Reykjanesbrautarinnar nærri Straumi var óklárað verk að aðskilja með vegriði beggja vegna ljósastaura sem eru nú á milli gagnstæðra átta…
Við fengum til okkar leikarann og söngvarann góðkunna Örn Árnason og ræddum við hann um ferilinn og allt sem hann er að fást við þessa dagana. Við hringdum líka í Þórhildi Magnúsdóttur sem er sambandsmarkþjálfi og spurðum hana út í Valentínusardaginn. Við spáðum í lögin í söngvakeppninni með Rögnu Björgu Ársælsdóttur og við hringdum í Magnús Kjartansson tónlistarmann og spurðum hann út í líkindi með lögum.

Þau Hrafnhildur Halldórsdóttir, Hólmfríður María Ragnhildardóttir og Rúnar Róbertsson halda landanum vel upplýstum um menn og málefni á leið úr vinnu. Þau fylgjast með fréttum og dægurmálum og spila nóg af góðri tónlist.