
Síðdegisútvarpið
Þau Hrafnhildur Halldórsdóttir, Hólmfríður María Ragnhildardóttir og Rúnar Róbertsson halda landanum vel upplýstum um menn og málefni á leið úr vinnu. Þau fylgjast með fréttum og dægurmálum og spila nóg af góðri tónlist.
Hópur Vesturbæinga hefur sett af stað undirskriftasöfnun gegn fyrirhugaðri uppbyggingu í Vesturbugt við Gömlu Reykjavíkurhöfn og kalla eftir nýju deiliskipulagi. Þau segja uppbyggingaáformin ganga gegn stefnu borgarinnar um hverfisvernd sem er sett fram í Aðalskipulagi Reykjavíkur 2040. Páll Jakob Líndal, umhverfissálfræðingur og Ásta Olga Magnúsdóttir ábyrgðarmaður undirskriftalistans fóru yfir málið með okkur.
Guðrún Dís settist niður fyrr í dag með Lilju Dögg Jónsdóttur framkvæmdastjóra Almannaróms en stofnunin auk fjögurra gervigreindarstofnanna frá Norðurlöndunum hyggjast stofna norræna-baltneska gervigreindarmiðstöð. En hvað er Almannarómur og hvert verður hlutverk gervigreindarmiðstöðvarinnar?
Júní hefur verið vætusamur á meðan maí var sá heitasti í manna minnum. Hvaða áhrif hefur veðráttan á golfvelli landsins og í hvernig standi eru þeir? Munu golfþyrstir íslendingar ná að spila golf langt fram eftir hausti? Bjarni Þór Hannesson vallarstjóri Golfklúbbs Mosfellsbæjar og sérfræðingur í golfvallagerð fræddi okkur um það.
Ferðalangar um hálendi Íslands hafa í gegnum tíðina þurft að bóka gistingu í skálum á ferðum sínum án þess að hafa yfirsýn yfir hvaða skálar eru lausir á þeim tíma sem ferðast skal á. Nú er verið að bjóða uppá lausn, vefsíðu þar sem fjölmargir skálar á hálendinu eru í boði. Skúli Skúlason kom og sagði okkur nánar frá vefsíðunni huts.is
Metmagn af áfengi verður flutt til Jan Mayen í ár, þrátt fyrir að eyjan sé strangt til tekið eyðieyja þar sem örfáar hræður starfa. Atli Steinn Guðmundsson blaðamaður hefur kafað í þetta mál og var á línunni hjá okkur
Og við fengum Eddu Sif Pálsdóttur af íþróttadeildinni til að hita okkur aðeins upp fyrir EM kvenna í knattspyrnu sem hefst á miðvikudaginn næsta og er fyrsti leikur íslenska landsliðsins þann dag gegn Finnlandi.

Þau Hrafnhildur Halldórsdóttir, Hólmfríður María Ragnhildardóttir og Rúnar Róbertsson halda landanum vel upplýstum um menn og málefni á leið úr vinnu. Þau fylgjast með fréttum og dægurmálum og spila nóg af góðri tónlist.