Síðdegisútvarpið

Leyft öllum aldurshópum

Lykkjuhneyksli, bökunarmaraþon, börn í umferð og golfsvindl

Ísland spilaði sinn fyrsta leik á EM í körfubolta nú í hádeginu og tapaði þar fyrir Ísrael. Einar Örn Jónsson íþróttafréttamaður krufði leikinn með okkur.

Mette Fredriksen forsætisráðherra Danmerkur bað í gær þolendur í lykkjuhneykslinu svokallaða opinberlega afsökunar. Getnaðarvarnarlykkju var komið fyrir í 4.500 grænlenskum konum og stúlkum allt niður í 13 ára, án samþykkis þeirra eða vitundar, til að draga úr fólksfjölgun. Við heyrðum í Ingu Dóru Guðmundsdóttur fjölmiðlakonu og almannatengli sem er búsett á Grænlandi.

Og við höldum áfram að heyra í landvörðum vítt og breitt um landið, og í þetta sinn slógum við á þráðinn til Unu Sóleyjar Stefánsdóttur, sem er landvörður í þjóðgarðinum á Snæfellsnesi

4436 ný skólabörn bættust við í umferðina nú í vikubyrjun þegar skólarnir hófu göngu sína. Mörg þessara barna eru að fara í fyrsta skipti sjálf um göturnar. Hvað getum við gert til að tryggja öryggi þeirra í umferðinni. Hrefna Sigurjónsdóttir, verkefnastjóri forvarna hjá Sjóvá og Gunnar Geir Gunnarsson, deildarstjóri öryggis- og fræðsludeildar Samgöngustofu ræddu umferðaröryggi nemenda.

Girnilegasta maraþon landsins verður 6 september, en þá ætla hjónin Lilja Katrín Gunnarsdóttir og Guðmundur R Einarsson ásamt börnum sínum fjórum að baka í sólarhring til styrktar Berginu headspace. Bökunarmaraþonið er haldið í minningu fóstursonar þeirra Guðna Alexanders sem lést fyrr á árinu, en hefði orðið 21 árs þennan dag. Lilja Katrín og Guðmundur komu til okkar.

Borið hefur á því að fólk villi á sér heimildir á golfmótum, og sendi spilara á mót með mun meiri færni en þann sem er skráður. Við heyrðum í Huldu Bjarnadóttur forseta GSÍ.

Birt
Aðgengilegt til
Rennur ekki út
Lengd

Síðdegisútvarpið

Þau Hrafnhildur Halldórsdóttir, Hólmfríður María Ragnhildardóttir og Rúnar Róbertsson halda landanum vel upplýstum um menn og málefni á leið úr vinnu. Þau fylgjast með fréttum og dægurmálum og spila nóg af góðri tónlist.

Þættir

,