
Síðdegisútvarpið
Þau Hrafnhildur Halldórsdóttir, Hólmfríður María Ragnhildardóttir og Rúnar Róbertsson halda landanum vel upplýstum um menn og málefni á leið úr vinnu. Þau fylgjast með fréttum og dægurmálum og spila nóg af góðri tónlist.
Til okkar kom Ólöf Ragnarsdóttir fréttamaður og ræddi stöðuna í mið austurlöndum.
Sjálfboðaliðar dýraverndunarsamtaka eru að niðurlútum komnir vegna gríðarlegs fjölda gæludýra sem eru heimilislaus og á vergangi. Við ætlum að ræddum stöðuna við Söndru Ósk Jóhannsdóttur sjálfboðaliða hjá Dýrfinnu.
Fleiri tugir íslenskra fyrirtækja sem nýtt hafa þjónustu gistibókunarsíðunnar Booking.com hafa skráð sig í samevrópska hópmálsókn á hendur fyrirtækinu. En út á hvað gengur þessi málssókn því svaraði Jóhannes Þór Skúlason, framkvæmdastjóri Samtaka ferðaþjónustunnar,
Nú hefur Sorpa hafist handa við að koma upp öryggismyndavélum á grenndarstöðvum sínum í Reykjavík. Hvers vegna er það ? Gunnar Dofri Ólafsso sviðsstjóri þjónustu og samskiptasviðs Sorpu var á línunni
Það ríkti sannkallaður samstarfsandi í Skálholti um helgina en þá var bókasafn úr turni Skálholtsdómkirkju flutt úr turni kirkjunnar niður í nýja bókhlöðu í kjallara Gestastofunnar. Það voru sjálfboðaliðar úr ýmsum áttum, starfsmenn, björgunarsveitarfólk, kvenfélagskonur, fjölskyldumeðlimir og einstaka ferðamenn tóku þátt. Við heyrðum í Kristjáni Björnssyni vígslubiskupi í Skálholti um þetta verkefni og bókakostinn sem til stendur að opna fyrir almenningi.

Þau Hrafnhildur Halldórsdóttir, Hólmfríður María Ragnhildardóttir og Rúnar Róbertsson halda landanum vel upplýstum um menn og málefni á leið úr vinnu. Þau fylgjast með fréttum og dægurmálum og spila nóg af góðri tónlist.