Síðdegisútvarpið

Leyft öllum aldurshópum

Unnur Eggerts, Orð ársins, færa klukkuna eða ekki og Sporið.

Nú eru í gangi tvær undirskriftasafnanir á ísland.is önnur er um það að klukkan á Íslandi verði leirétt og færð aftur um eina klukkustund hin er um að klukkunni á Íslandi verði haldið óbreyttri til að vernda síðdegisbirtu. Við opnuðum símann og spurðum hlustendur.

Nú er verið að auglýsa eftir orði ársins á ruv. Það eru nokkrir dagar eftir fyrir fólk að senda inn tillögur. Anna Sigríður Þráinsdóttir málfarsráðunautur kom til okkar.

Unnur Eggertsdóttir söng og leikkona, markaðssérfræðingur, upplýsingafulltrúi hefur farið á kostum á tik tok þar sem hún útskýrir siði og venjur íslendinga fyrir alheiminum. Unnur var á línunni beint frá Bandaríkjunum.

Árni Helgason er uppistandari, lögmaður og varaþingmaður og nú rithöfundur var að senda frá sér nýja skáldsögu sem heitir Aftenging. Árni kom til okkar og sagði frá.

Við ræddum líka breytingarskeið karla við Röggu Nagla.

Magne Kvam hefur síðastliðna átta vetur lagt gönguskíðaspor á höfuðborgarsvæðinu í samvinnu við Reykjavíkurborg og Mosfellsb sem gengurundir nafninu Sporið. Nú er efnt til söfnunar á Karolinafund á nýju tæki sem getur þjónað gönguskíðafólki enn betur í vetur Magne ræddi við okkur.

Birt
Aðgengilegt til
Rennur ekki út
Lengd

Síðdegisútvarpið

Þau Hrafnhildur Halldórsdóttir, Hólmfríður María Ragnhildardóttir og Rúnar Róbertsson halda landanum vel upplýstum um menn og málefni á leið úr vinnu. Þau fylgjast með fréttum og dægurmálum og spila nóg af góðri tónlist.

Þættir

,