Síðdegisútvarpið

Leyft öllum aldurshópum

Föstudagsútgáfan: Eurovisionstemningin tekin alla leið!

Síðdegisútvarpið 16. maí

Það var föstudagsútgáfa með þeim Friðriki Ómari og Hrafnhildi Halldórs.

Hitamet í Reykjavík, Sóley Lóa Smáradóttir spjallaði við okkur frá Ylströndinni.

Það muna allir hvar þeir voru þegar Stjórnin með Siggu og Grétari í fararbroddi landaði fjórða sætinu í Sagreb, sem var jú okkar besti árangur fram að því og lengi vel eða þar til Selma tók annað sætið árið 1999. Keppnin sjálf hefur breyst og þróast með árunum og sitt sýnist hverjum. Grétar Örvarsson mætti í létt spjall.

Það er að mörgu að huga þegar kemur að því að búa til atriði fyrir Eurovision keppnina og ekki síst þegar kemur að myndvinnslu og hönnun sjálfs atriðisins. Leikstjóri atriðis þeirra Væb bræðra er heldur betur ekki að koma að keppninni í fyrsta sinn. Selma Björnsdóttir var á línunni frá Basel.

Sigurlaug M. Jónasdóttir matgææðingur: Sumarveður um allt land hefur áhrif á það sem við borðum. Grillum við meira? Hvað eigum við að borða á meðan við horfum á Eurovision?

Lagaþrennan - Hlustendur fengu að hringja inn og kjósa sitt topplag úr þeim þremur sem spáð er efstu sætunum en eins og staðan er núna er baráttan á milli Svía, Austurríkis og Frakklands.

Birt
Aðgengilegt til
Rennur ekki út
Lengd

Síðdegisútvarpið

Þau Hrafnhildur Halldórsdóttir, Hólmfríður María Ragnhildardóttir og Rúnar Róbertsson halda landanum vel upplýstum um menn og málefni á leið úr vinnu. Þau fylgjast með fréttum og dægurmálum og spila nóg af góðri tónlist.

Þættir

,