Síðdegisútvarpið
Þau Hrafnhildur Halldórsdóttir, Hólmfríður María Ragnhildardóttir og Rúnar Róbertsson halda landanum vel upplýstum um menn og málefni á leið úr vinnu. Þau fylgjast með fréttum og dægurmálum og spila nóg af góðri tónlist.
Við byrjuðum á því að heyra í Grétu Sigríði Einarsdóttur fréttamanni sem stödd var á Látrabjargi.
Við fórum þaðan yfir á Hellisand en þar er Sigurður Þorra Gunnarsson dagskrárgerðamaður búinn að dvelja síðan í gær spjalla við gesti og gangandi og lýsa fyrir okkur hvað þarna er í gangi.
Sævar Helgi Bragason gaf sér tíma til að kíkja á okkur í útsendinguna en Sævar hefur vart hugsað um annað sl. 3 ár eða svo og nú er stóri dagurinn runninn upp.
Á Seltjarnarnesi var mikið um dýrðir og við náðum tali af bæjarstjóranum Þór Sigurgeirssyni sem lýsti fyrir okkur í beinni útsendingu hvað fyrir sjónum bar.
Ólöf Rún Erlendsdóttir fréttamaður var stödd í Fljótunum ásamt fjölda fólks að freista þess aðsjá til myrkvans.
Helga Magnea Birkisdóttir staðarhaldari á Stapanum Arnarstapa var á línunni og sagði okkur frá dagskránni á Arnastapa þar sem fólk kom saman á þessum merku tímamótum.